11.5.2010 | 09:53
Já er hann Óskar hættur, en leiðinlegt !
Óskar hættir á Fréttablaðinu vegna loginna og meiðandi frétta er birtust á miðlum þeim er hann stýrði. Meiðyrðamál sem rekið er gegn Fréttablaðinu og Stöð 2 er líklega tapað mál og því hefur sennilega verið samið um málið sem flytja fyrir Héraðsdómi í þessari viku og trúlega verður fellt niður.
Í yfirlýsingu á Stöð 2 var farið mjög mikinn í tilkynningu þeirra um að fréttaflutningur hafi ekki verið nógu áreiðanlegur og óvandaður í þessu máli sem og öðrum og þeir dragi því til baka fréttina. Já það er furðulegt ef þetta er nóg, á Íslandi eru margir sem eiga um sárt að binda vegna rangs fréttaflutnings úr hendi/munni þessa fréttastjóra og málgagna hanns en eiga ekki fyrir dírum og flottum lögmönnum til að verja sig og láta taka fréttir til baka. Hvernig ætla þeir að taka þessar fréttir til baka ? Verður þeim eytt í gömlum útgáfum fréttanna (eldri blöð)? verður þeim eytt af netinu (google) ? verður þeim eytt úr minni fólks ? Nei þessu verður ekki eytt, þetta er komið til að vera. En Óskar ekki, hann er hættur.
Nú sitja 2 menn í gæsluvarðhaldi, grunaðir um stófelld brot og allir dæma, en sennilega er ágætt ef þeim verður bara bent á hvernig þeir geta losnað úr prísundinni, ég ætla að segja það sem enginn virðist þora, strákar gerið eins og Fréttablaðið og Stöð 2; TAKIÐ GLÆPINN TIL BAKA, þá verður allt gott aftur í lífinu.
Ágætur lögmaður sem hefur farið mikinn í að vinna gegn þeim fjölmiðlum sem dreifa skít í allar áttir án þess að tína upp eftir sig (eins og góðra hudaeigenda siður er) kallaði þessa blaðamenn "síbrotamenn" sem ég reyndar tel vera réttnefni en þeir fela sig svo gjarnan á bakvið það að fólk þurfi vitneskju um tiltekin mál, en er ekki rétt að fólk geti komið að vörnum án þess að blaðamenn ákvarði aðila í málum seka. Nú mun Óskar sitja undir því að yfirlýstur fréttaþorsti almennings hafi krafist þess að fá fréttir og að hann hafi bara orðið við þeirri bón að slökkva þann þorsta með hvaða tegund af "stíflueyði" sem er.
Núna fær Óskar að kenna á sínum meðulum, honum hefur verið hent fyrir ljónin.
![]() |
Fréttastjóri hættur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleymt og grafið í gærdagsins önn.
Stebbi Stef (IP-tala skráð) 11.5.2010 kl. 10:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.